umræða um þingmál.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingflokksformönnum að það eru mörg mál sem er nauðsynlegt að ræða sem eru stór mál. Við bíðum enn þá eftir að ræða hér t.d. rammaáætlun og svo kílómetragjöldin og önnur mál sem þurfa mjög mikla umræðu, eigi þau að halda hér áfram, sem ég tel að við ættum að nýta tímann í þó að það hafi sýnt sig að það er alltaf þörf á að ræða veiðigjöldin annað slagið því þar taka nú mál bara oft breytingum og eru búin að taka nokkrum sinnum breytingum á meðan umræðan hefur verið. Það hafa komið fram nýjar upplýsingar og ýmislegt verið uppfært í því frumvarpi frá því að það kom fyrst fram þannig að það er mikilvægt að ræða það. Ég fagna því svo sem að það sé á dagskránni í dag til að fara yfir það sem hefur gerst síðan síðast, en það eru mörg önnur mál sem ég held að við ættum að nýta tímann í, sérstaklega af því að það er kominn 7. júlí.