156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:06]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessar upplýsingar og hef fullan skilning á því að forseti þurfi að meta dagskrána dag frá degi. En eins og bent hefur verið á þá eru ýmis mál sem þurfa mjög að komast hér á dagskrá. En ég er reyndar svo glöð að sjá hæstv. ráðherra líka í salnum og góða mætingu þannig að ég óska eftir því, virðulegur forseti, að hér verði málefnalegar og góðar umræður um veiðigjöldin. Ég hef saknað hæstv. ráðherra alveg í 2. umræðu um veiðigjöldin þannig að það væri bara mjög gaman að þá yrði hér málefnaleg umræða og það heyrðust fleiri sjónarmið því að stjórnarliðar og hæstv. ráðherrar geta mjög tjáð sig um málið í fjölmiðlum en það gengur eiginlega meira út á að tala okkur í stjórnarandstöðunni niður og tala niður okkar sjónarmið. Það væri þá bara áhugavert að þessi umræða yrði málefnaleg og góð í dag.