156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:07]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það ástand sem hér ríkir á þinginu er alfarið í boði stjórnarandstöðunnar, alfarið. Það vil ég bara segja hér hreint út að þau vinnubrögð sem hafa verið ástunduð, það málþóf sem hefur verið í gangi er andlýðræðislegt. Síðan er hér eitthvert tal um að það séu að koma fram einhverjar nýjar upplýsingar um veiðigjaldafrumvarpið. Það er bara ekki þannig. Það er alveg ljóst af þeim fundi sem var haldinn núna í síðustu viku að beiðni stjórnarandstöðunnar að allt sem er í nefndarálitinu er kórrétt. Þetta er bara einhver vitleysa sem er haldið hérna fram til að geta haldið þessum leik áfram fram í ágúst.

Frú forseti. Það eina sem er kannski nýtt og maður sá á umræddum fundi var að hv. stjórnarandstaðan virðist ekki hafa skilið frumvarpið. Nú verður fróðlegt að sjá þegar það verður farið í frekari umræðu hvort það verði kominn einhver dýpri skilningur á því máli sem helst er deilt hér um.