156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:08]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er alltaf jafn ánægjulegt að hlusta á hv. þingmann, formann atvinnuveganefndar. Hann er sá þingmaður stjórnarliðsins sem gengur harðast fram í því að þora að vera á móti staðreyndum, alltaf, undir öllum kringumstæðum og ætlar ekkert að breyta út frá því núna. En staðan er einfaldlega þessi, virðulegi forseti: Við erum með ríkisstjórn í landinu sem fór ekki að lögum um opinber fjármál, mætir ekki til að ræða opinber fjármál, setur ekki inn í áætlanir eigin yfirlýsingar um útgjöld sem nema 77 milljörðum kr. á ári. Það er staðan. Fara ekki eftir lögunum, mæta ekki til umræðunnar þegar þau eru að ræða mikilvægasta málið sitt sem er fjármálastefna og fjármálaáætlun.

Virðulegi forseti. Ef það væri einhver bragur á þessu þingi þá myndu menn (Forseti hringir.) beita sér fyrir því að ríkisstjórnin myndi svara því hvernig hún ætlar að halda þá áætlun sem augljóslega er algerlega sprungin.