156. löggjafarþing — 82. fundur, 7. júlí 2025.
umræða um þingmál.
Frú forseti. Í ljósi orða hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar rétt áðan, formanns hv. atvinnuveganefndar, um skilningsleysi fulltrúa stjórnarandstöðu í atvinnuveganefnd á málinu, þá vil ég bara beina því til virðulegs forseta að koma í kring einhvers lags námskeiði þannig að hv. formaður nefndarinnar geti glöggvað sig á því, því að stöðufærsla hv. formanns á Facebook í kjölfar þess fundar sem haldinn var, bendir til þess að hv. þingmaður hafi hvorki skilið tilefni fundarins né málið í heild sinni.