156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:11]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég kem hér upp í kjölfarið á orðum hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar. Hann segir að við höfum ekki skilið frumvarpið. Hvernig væri þá að einhver úr þessum meiri hluta kæmi í umræðuna? Með þessum orðum er gert mjög lítið úr áhyggjum um 30 sveitarfélaga, fjölda nýsköpunarfyrirtækja, endurskoðunarfyrirtækja, lögfræðimats, áhyggjum af því að störf flytjist úr landi, áhyggjum af því að félagslegum vandamálum fjölgi o.s.frv.