156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:12]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil þakka þingflokksformönnum minni hlutans að koma hér og vekja athygli á því að ekki stendur á minni hlutanum að ræða önnur mál heldur en veiðigjaldið. En veiðigjaldið hefur verið töluvert til umræðu og ég er sjálfur viss um það að ef stjórnarmeirihlutinn kæmi hingað upp í einhvers konar samtal, minni hlutinn þyrfti ekki að vera í eintali hér, þá væri búið að afgreiða þetta mál örugglega að einhverju leyti. [Hlátur í þingsal.] (Forseti hringir.)

(Forseti (ÞSv): Gefa þingmanni hljóð.)

Ég ákvað að kalla þetta fliss fram hér í þingsal þannig að almenningur geti séð á hvaða stað við erum. Við erum hér fullorðið fólk í þingsal, það hafnar því að taka samtal og þegar það er minnt á það þá fer það að flissa. Ég vil ekki einu sinni segja það, það er ekki hægt að tala um að börn hegði sér einu sinni svona. Þetta er staðan sem almenningur ætti að átta sig á, að meiri hlutinn geti í rauninni ekki tekið samtalið og kann ekki hegða sér, því miður.