umræða um þingmál.
Frú forseti. Það var ánægjulegt að fá seinni fundinn með Skattinum, það tók ekki nema fjóra daga í þetta skipti að fá þá til að fara yfir hlutina. (Gripið fram í.) Það tók fjóra daga. Í fyrra skiptið tók það tíu daga og þá rangar forsendur og röng gögn reiknuð. (Gripið fram í.) Jú, það var staðfest á þeim fundi. (Forseti hringir.)
(Forseti (ÞSv): Gefa þingmanni hljóð.)
Það væri ánægjulegt ef hæstv. atvinnuvegaráðherra kæmi nú aðeins og ræddi við — ef hann bara veitti sér smátíma, í staðinn fyrir að vera einhvers staðar annars staðar heldur en í þessum þingsal til að ræða þessi mál.
Það vekur síðan sérstaka athygli þegar við erum að ræða hér fjármálaáætlun, fjármálastefnu, stöðugleikareglu — hvar eru þingmenn stjórnarmeirihlutans í svona umræðu? Grunnmál, fjármálaáætlun, fyrsta umræða um fyrsta árið þar sem er lögð fram fjármálaáætlun. Hv. þingmenn í fjárlaganefnd, meiri hlutanum, þeir taka varla þátt í umræðunni, koma rétt inn í nokkrar mínútur. Arna Lára, ég er að tala um almennt yfir línuna. (Forseti hringir.) Formaður nefndarinnar, varaformaður, það var mjög takmörkuð þátttaka hérna. Það er ekki gott. Það er ekki gott fyrir þingið (Forseti hringir.) þegar við ræðum grundvallarmál, eitt það stærsta.
(Forseti (ÞSv): Ávarpa skal þingmenn með fullu nafni.)