156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:19]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf):

Hæstv. forseti. Það er ástæða til að leggja orð í belg. Hér vill minni hluti á Alþingi halda máli í gíslingu út af veiðigjöldum. En sú umræða sem átt hefur sér stað um sjávarútveg hérna síðustu daga og vikur er með ólíkindum. Hérna bullar fólk tóma vitleysu og manni dettur í hug að þetta séu meira og minna þorskar á þurru landi, viti ekkert hvað þeir eru að segja og leggja til. Ég hvet fólk til að hætta að hlusta á einhliða áróður LÍÚ-klíkunnar og fara eftir þeim eins og hundur í bandi og gelta þegar þeim er sigað. Það er það sem manni sýnist vera í gangi hjá stjórnarandstöðunni í dag. Það er farið með alls konar rangindi á flestum sviðum varðandi sjávarútvegsmál, bæði hvað varðar fiskveiðistjórn (Forseti hringir.) og það að enginn sjávarútvegur sennilega í heiminum er meira ríkisstyrktur heldur en íslenskur sjávarútvegur. (Gripið fram í: Ha?)