156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:22]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Mig langar hér í upphafi máls míns spyrja virðulegan forseta hvort það séu einhverjar áætlanir um það, ef það nást hér samningar og miðað við hve mörg mál eru órædd enn þá og ekki búin að fara hér í gegnum ferli, hvað það muni taka þingið langan tíma að klára náist samningar. (Gripið fram í.) Hvað er lágmarkstími í það, náist samningar? En svo í seinni hlutanum langar mig aðeins að velta upp hvort það þurfi ekki að skipta um kórstjóra á sameiginlegum þingflokksfundum stjórnarflokkanna þar sem þá sitjandi hæstv. forsætisráðherra, Inga Sæland, kemur fram og segir að sveitarfélögin muni stórgræða á þessu. Hér kemur líka hv. formaður atvinnuveganefndar og talar bara um það sem er í álitinu. Hann nefnir ekki það sem er ekki í álitinu. Svo kemur fulltrúi Viðreisnar og segir að það eigi ekki að taka mark á einhverjum Facebook-status úti í bæ þó að það sé frá sitjandi forsætisráðherra. (Forseti hringir.) Hann segir að það sé ekki hægt að sitja undir umræðunni hér en samt eigi hún að fara fara hér fram. Og svo segir hæstv. atvinnuvegaráðherra (Forseti hringir.) að það sé ekki mark takandi á einhverju endurskoðendafyrirtæki úti í bæ, sem ríkið verslar nú mest við sjálft.