156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:24]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegur forseti. Við búum við það að hæstv. forsætisráðherra og ríkisstjórn kemur hérna og leyfir sér að segja það að þessi 8.000 millj. kr. skattahækkun að lágmarki hafi engin áhrif. Hér kemur formaður atvinnuveganefndar og segir að allir misskilji þetta frumvarp nema stjórnarliðar en á sama tíma kom þáverandi hæstv. forsætisráðherra og útskýrði fyrir þjóðinni, en þurfti að vísu að draga í land með það, að þetta myndi stórhækka tekjur sveitarfélaga í gegnum útsvarstekjur. Svo vel skilur stjórnarmeirihlutinn sitt eigið mál. Það er fáheyrt að það þurfi að slást um það að fá sérfræðinga fyrir nefndina. Þessi nýi stíll ríkisstjórnarinnar að ræða mál ekki í nefndum mun reynast þjóðinni dýr. Það er líka stóralvarlegt og ég ætla að halda áfram að vekja athygli á því, vegna þess að það er grunnurinn að þessu öllu saman, að ríkisstjórnin fór ekki að lögum um opinber fjármál og er, miðað við eigin yfirlýsingar, algjörlega búin að sprengja framkvæmdaáætlunina, fylgir henni ekki eftir, tekur enga umræðu, enginn sem ber ábyrgð á henni eða kemur í þingsal til að ræða þetta.

Virðulegi forseti. Þetta er mjög alvarlegt fyrir íslenska þjóð.