156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:27]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Þetta var alveg makalaust, þetta síðasta, vegna þess að þetta eru 26 sveitarfélög landsbyggðarinnar, sjávarútvegssveitarfélög vítt og breitt um landið þar sem þetta eru grundvallarmál, grundvallarhagsmunir í atvinnulífi þessara staða, enda þekkjum við það í þessari umræðu að 17–18% af útsvari þessara sveitarfélaga kemur úr sjávarútvegi. Heyrðu, það er sem sagt ekki meiri hluti sveitarfélaga í landinu sem er að senda inn athugasemdir við þetta mál og þar með eiga þessi 26 sveitarfélög sem eiga allt undir ekki að tjá sig. Þau hafa bara ekkert að segja í málinu. Þetta er ekki hægt. [Kliður í þingsal.] Hvers konar umræða er þetta? (Gripið fram í: … að tjá sig?) (Forseti hringir.)

(Forseti (ÞSv): Gefa þingmanninum hljóð.)

Ég er landsbyggðarþingmaður, sá sem hér stendur. Ég ver hagsmuni landsbyggðarinnar fyrst og fremst í þessu máli, grunnatvinnuveg, störf fólksins og þeirra aðila sem tengjast þessari starfsemi. (Gripið fram í: Þú ert ekki eini landsbyggðarþingmaðurinn hérna. ) Nei, ég hef orðið var við það. (Forseti hringir.) Það eru ekki allir að verja hagsmuni landsbyggðar í þessu máli. Það er ljóst. (Forseti hringir.) — Er tíminn búinn?

(Forseti (ÞSv): Hv. þingmaður er kominn 25 sekúndur fram yfir.)

Ég hvet svo sannarlega hv. þingmenn og sérstaklega landsbyggðarþingmenn til að taka aðeins þátt í umræðunni til að fara í gegnum hvað er undir hér fyrir stóran hluta landsbyggðarinnar og sjávarútvegsbyggðirnar.