umræða um þingmál.
Virðulegur forseti. Ég kem hérna upp til að lýsa yfir undrun og vonbrigðum með þær yfirlýsingar og orðbragð sem hér er enn viðhaft í þingsal. Ég frábið mér það enn einu sinni að vera sökuð um það að vera að verja hagsmuni einhverra sérhópa. Nú er ég orðin ein af þeim sem er eins og hundur í bandi einhverra sérhagsmuna. Ég frábið mér þessa orðræðu. Ég hélt, með inngripi formanns Viðreisnar fyrir nokkrum dögum þar sem hæstv. ráðherra var að óska eftir því að við myndum láta af orðræðu í þessum stíl, að menn hefðu eitthvað lært af því. Það kom eftir að stjórnarandstæðingar höfðu verið sakaðir um falsfréttir og þar fram eftir götunum þannig að ég bið um það og frábið mér, nýkjörinn þingmaður, að vera sökuð um að vera hundur í bandi einhvers. Ég tek líka undir að það er mjög lítið gert úr áhyggjum 26 sveitarfélaga sem hafa mikla hagsmuni af því að (Forseti hringir.) atvinnulífið verði látið í friði á viðkomandi stöðum, mjög lítið gert úr því.