umræða um þingmál.
Virðulegur forseti. Vilja ekki samtal, vilja bara ráða, sagði hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir. Er það ekki bara nákvæmlega það sem þetta snýst um, nema meiri hlutinn vill ekki samtal, hann vill bara ráða? Hann virðist ekki vera búinn að læra að fara með vald. [Framíköll í þingsal.] Nákvæmlega. Nú segir hérna: Við erum með meiri hluta …
(Forseti (ÞSv): Gefa þingmanni hljóð.)
Þið eruð greinilega ekki búin að læra að fara með vald vegna þess að hér eru búnir að koma sjö hv. þingmenn við þessa 2. umræðu um veiðigjöld til að ræða veiðigjöldin, samtals sjö. Og ég get sagt ykkur líka að það kom enginn, held ég, í útlendingaumræðuna og það var nánast enginn í fjármálaáætluninni. Þetta er svona nánast í öllum málum. Þið viljið ekki ræða þetta. Þið viljið bara misbjóða okkur hinum með valdníðslu.