156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:33]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég held að þjóðin sé býsna svekkt í dag. Það er reyndar yfir fótboltaleik sem var spilaður í gær. Ég held að þeim sé nokk sama um hvað við erum að rífast hérna inni. Það er hins vegar áhugavert að við skulum vera hérna 7. júlí. Það er þannig að það er vandasamt að umgangast lýðræðið. Það er flókið að vera í minni hluta en það er enn flóknara að vera í meiri hluta. Meiri hlutinn ber auðvitað ábyrgð á því að ná fram niðurstöðu og til þess þarf að umgangast hlutina af virðingu, ákveðinni auðmýkt. Og minni hlutinn þarf að gera það líka. Við höfum verið að benda á í einu máli — og það er fáránlegt, frú forseti, að vera að sakast við forseta um fundarstjórn þegar menn taka umræðu um veiðigjöld hér. Stjórnarmeirihlutinn notar hérna eina mínútu til að setja fram rök sín hér. Tökum þá umræðu undir veiðigjöldum. En að við skulum vera hér 7. júlí, ekki búin með fjármálaáætlun sem fjárlögin byggja á — það verður hver og einn að fara að horfa í eigin barm, ekki síst meiri hlutinn, að það sé ekki búið að ljúka þingi 7. júlí.