umræða um þingmál.
Frú forseti. Hér í upphafi hófum við þá umræðu að við í minni hlutanum værum til í að taka önnur mál á dagskrá, mikilvæg mál. Það er ekki bara eitt mál í þinginu og dagskrárvaldið er í höndum meiri hlutans, þannig að því sé bara algerlega haldið á lofti. En, frú forseti, ég veit ekki hvort það er einhvers konar námskeið eða eitthvað slíkt en meiri hlutinn er hér ítrekað að trufla ræðumenn úr sal. Það er minni hlutinn ekki að gera. Það hefur vissulega komið einstaka sinnum fyrir hjá minni hlutanum en það er regla hjá meiri hlutanum og það er þeim ekki til sóma þannig að ég hvet bara meiri hlutann að haga sér í þingsal. Það er jákvætt.
Svo með lýðræðið. Ég veit ekki hvort menn átta sig á því hvað menn hafa lært í skóla, að þó að menn séu með 51% lýðræði og aðrir um 49% þá virkar lýðræðið þannig að við reynum að taka tillit til minni hluta. Þess vegna eru nefndir, þess vegna er þingsalurinn hér, að breyta málum, koma til móts við sem allra flesta en ekki valta yfir alla (Forseti hringir.) í krafti 51% lýðræðis. Það er enginn sem hefur áhuga á því. (Forseti hringir.) Ef meiri hlutinn vill það, og reyndar virðist hann vilja það, þá er það bara sérstakt. Ég bara bið fólk um að setja sig í þau spor (Forseti hringir.) að vera í 49% minni hluta. Ég myndi ekki vilja það sem meirihlutaþingmaður að valta yfir með 51% (Forseti hringir.) atkvæða, bara alls ekki, alls ekki. (Forseti hringir.) Taka tillit til minni hlutans.
(Forseti (ÞSv): Forseti bendir þingmönnum á að ræðutíminn í fundarstjórn forseta er ein mínúta, ekki ein og hálf.)