156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:36]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ákvörðun minni hlutans að fara í málþóf. Það er mér ljúft og skylt að upplýsa þingmenn sem mættu seint til umræðunnar að hér tóku þingmenn stjórnarmeirihlutans þátt í um tíu klukkustundir í þessari umræðu, sem er nú bara talsvert í 2. umræðu. Ég tala nú ekki um eftir að met var slegið í 1. umræðu eftir þá fjöldamörgu nefndarfundi sem haldnir voru. Þar komu gestir, það var brugðist við athugasemdum með breytingartillögum. Þar var komið til móts við áhyggjur sveitarfélaganna með hækkun frítekjumarka. Boðaðir hafa verið tveir viðbótarfundir í atvinnuveganefnd á meðan 2. umræða stendur til að bregðast við áhyggjum, hlusta á athugasemdir minni hlutans og bregðast við þeim. Þrátt fyrir þetta allt ákveður minni hlutinn enn þá að vera í málþófi, ákveður minni hlutinn enn þá að þetta mál eigi ekki að komast til atkvæðagreiðslu og það er að standa í vegi fyrir framgangi lýðræðisins í landinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Hér er verið að hlusta á sjónarmið. Hér er verið að bregðast við athugasemdum umsagnaraðila og minni hlutans en það er minni hlutinn sem ákveður að halda málþófinu samt áfram, (Forseti hringir.) að hleypa lýðræðinu ekki í gegn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)