156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:40]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þm. Ásthildar Lóu Þórsdóttur vil ég nú bara að biðjast afsökunar á því að sveitarfélagið sem ég bý í, Hveragerði, hafi ekki sent umsögn og hafi ekki haft skoðun á sjávarútvegi. Ég vil fá að minna hv. þingmann á kjördæmið sem hún starfar fyrir þar sem mörg sveitarfélög í því kjördæmi sendu ekki inn umsögn, eins og t.d. Hveragerði, ekki Selfoss, ekki Hella, ekki Hvolsvöllur, ekki Vík, ekki Kirkjubæjarklaustur, líklega ekki Egilsstaðir. Af hverju er verið að gera lítið úr sveitarfélögum þar sem sjávarútvegur skiptir öllu máli? Af hverju er verið að gera lítið úr þeim umsögnum sem berast frá þeim sveitarfélögum? Við í Sjálfstæðisflokknum og hér í stjórnarandstöðunni gerum okkur fyllilega grein fyrir því að við ráðum engu hér hvað er á dagskrá. Við gerum okkur fyllilega grein fyrir því, gerðum það frá fyrsta degi þegar niðurstaða kosninga lá fyrir. Þannig erum við. En við erum einfaldlega bara að ræða þau mál sem hér eru sett á dagskrá. (Forseti hringir.) Það er ekkert nýtt í því. Það er aftur á móti nýtt í því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur virðist vera algjörlega ófær um það (Forseti hringir.) að ljúka sínu fyrsta þingi þannig að sómi sé að.