156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

umræða um þingmál.

[10:43]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég ætla að koma hér og svara hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Það er enginn að gera lítið úr umsögnum 26 sveitarfélaga. Ég var bara að benda á, af því að hér er ítrekað verið að tala um 26 sveitarfélög, að þetta er engu að síður minni hlutinn. Það er bara þannig. Og lýðræðið er þannig að þegar gengið er til atkvæða þá ræður meiri hluti atkvæða. Það er bara það sem verið er að benda á í því samhengi.

Svo held ég líka að margir í minni hlutanum sem sátu hérna á síðasta þingi séu búnir að gleyma hvernig þau höguðu sér þegar þau voru við stjórn vegna þess að það var ekki mikið tillit tekið til minni hlutans sem þá var í nokkrum málum. Það var bara alls ekki gert. Þannig að núna svíður ykkur það rosalega að hafa ekki völdin og þið eruð ákveðin í því að láta núverandi meiri hluta — þetta er í fyrsta skipti bara í áratugi eða bara mjög langan tíma og sjaldan sem það hefur gerst, (Forseti hringir.) sem eru hrein stjórnarskipti og þið eigið bara — afsakið, frú forseti — minni hlutinn á mjög erfitt með það. Þannig að, eins og ég segi; full virðing fyrir þessum 26 sveitarfélögum, það var enginn sem þaggaði niður í þeim, þau fengu að tala og þau hafa gert það. Svona er málið.