156. löggjafarþing — 82. fundur, 7. júlí 2025.
umræða um þingmál.
Forseti vill að það komi fram hér að lokinni þessari löngu umræðu um fundarstjórn forseta að mér þykir mjög miður þegar þung orð falla í þingsal. Á það bæði við um ásakanir um lögbrot og þegar þingmönnum er líkt við rakka í bandi. Ég vona að það verði í fyrsta og síðasta sinn sem þessi forseti þarf að hlusta á slíka umræðu hér í þingsalnum.