156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[10:47]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Við höldum hér áfram að ræða stóra blekkingarleikinn. Við ræðum frumvarp sem snýr ekki að því hvort við séum hlynnt eða andvíg veiðigjöldum, snýst ekki um leiðréttingu, alls ekki um litla leiðréttingu eða einfalda leiðréttingu og það snýst ekki um réttlæti heldur snýr þetta frumvarp að stórkostlegum breytingum á rekstrarumhverfi undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar. Það virðist markmiðið að ræða ekki þetta risamál, fela innihaldið, vonast til að stjórnarandstaðan hætti að benda á veikleikana í einu mest gallaða frumvarpi sem hefur komið fram og kvarta svo yfir Íslandsmetum stjórnarandstöðunnar. Já, þetta er ekki einleikið, forseti. Mig undrar samt, við hverju bjóst hæstv. ríkisstjórn? Að hún gæti slegið öll met í ævintýralega illa unnu frumvarpi sem bitnar á undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar, hefur neikvæð áhrif svo víða án þess að stjórnarandstaðan myndi sinna sínu aðhaldshlutverki?

Ég minntist á hér áðan að það hafa komið sjö þingmenn í ræðu í þessari 2. umræðu. Það var, að ég tel, í byrjun. Síðan þá hefur komið margt fram. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson er til að mynda hér inni núna. Ég veit að hann hefur miklar skoðanir á þessu máli svo það væri nú alveg gaman að heyra frá honum, kannski aðeins meira um t.d. hvað hann segir við þessi sveitarfélög sem hafa sent inn umsagnir, hvort honum finnist þetta allt saman eitthvert rugl eða hvort hann hafi áhyggjur af þessu þó að hann virðist ætla að keyra þetta í gegn.

Við erum nefnilega að tala um að það eru hátt í 30 sveitarfélög sem vara við að frumvarpið verði samþykkt óbreytt vegna neikvæðra áhrifa. Við erum að tala um fjölda umsagna í samráðsgátt sem vara við að frumvarpið verði samþykkt óbreytt vegna neikvæðra áhrifa. Við erum að tala um að varað er við neikvæðum áhrifum á nýsköpun. Við erum að tala um að frumvarpið hvetji til þess að störf flytjist úr landi. Við erum að tala um að varað er við aukningu þegar kemur að félagslegum vandamálum. Við erum að tala um að gert sé ráð fyrir minnkuðu skattspori. Við erum að tala um að KPMG dregur í efa að frumvarpið standist lög. Það er nefnilega þannig.

En það er hægt að kvarta yfir því að málið komist ekki til afgreiðslu og kosninga. En ég held að það væri þó til bóta — nú sé ég að nokkrir hv. þingmenn meiri hlutans eru í salnum sem eru ekki venjulega — að þeir kæmu kannski hér upp og færu yfir þessi mál sem valda áhyggjum því að ég hef ekki heyrt það, ég heyri aðallega bara hér úr salnum að einhver kemur í fundarstjórn forseta til að segja: Við verðum bara að fá að greiða atkvæði um þetta. Já, það er gott. En væruð þið ekki alveg til í líka að fara yfir þessar áhyggjur? Nei, hristir hv. þm. Sigurjón Þórðarson höfuðið, hann er ekki til í það, heyrist mér. Það er það sem við erum að eiga við og ég vildi að það væri bara í þessu máli en hér virðist þetta vera lenskan í flestum málum. Það er allt í einu kominn nýr meiri hluti, eins og hv. þingmaður benti á áðan, algerlega nýr meiri hluti sem virðist algerlega eiga eftir að læra að fara með vald. Nú á bara að greiða atkvæði, það á ekki að taka þátt í umræðum, það á ekki að reyna að breyta og bæta málin en við verðum að reyna að standa vaktina fyrir fólkið í landinu engu að síður.

Hvað sem okkur finnst um fyrri ríkisstjórnir þá alla vega vildu þau tala fyrir sínum eigin málum. Þau vildu fá gesti á fundi, þau vildu reyna að bæta málin. Ég var ekki hérna á síðasta kjörtímabili, ég var ekki hrifin af þeirri ríkisstjórn en svona vinnubrögðum heyrði maður ekki af. Það virðist alla vega lenskan að svara ekki, alveg sama hvaða upplýsingar koma fram, þ.e. svara ekki hérna í ræðustól en hv. þingmenn koma óhikað á samfélagsmiðla og í viðtöl og svara bara eitthvað út í loftið. Þau svara og tala um frumvarpið eins og það innihaldi eitthvað allt annað en það inniheldur. Þau tala enn þá um að þetta sé einhver einföld leiðrétting og þeir eru ekki að tala um sveitarfélögin sem hafa áhyggjur, eru ekki að tala um áhyggjur af því að atvinnuleysi muni aukast. Nei, þau tala bara um þessa litlu, einföldu leiðréttingu sem þeir virðast vilja trúa að frumvarpið snúist um og það er miður. — Ég sé að ég á hér fimm sekúndur eftir þannig að ég óska eftir að forseti setji mig aftur á mælendaskrá og þá ætla ég að fara yfir mjög góða hagræna greiningu sem var unnin m.a. af Ragnari Árnasyni og það varpar kannski aðeins ljósi á hvernig kerfið virkilega er í dag.