156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[10:52]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Í síðustu ræðu minni var ég að fara aðeins yfir nefndarálitið og ég ætla að halda því áfram í dag. Mig langar hins vegar að fara aðeins yfir tölvupóst sem okkur þingmönnum Norðvesturkjördæmis og fulltrúum atvinnuveganefndar var að berast í morgun frá Grundarfjarðarbæ. Grundarfjarðarbær er eitt af þessum sveitarfélögum sem sendu inn umsögn í samráðsgátt þegar þetta mál var þar til umfjöllunar og varaði mjög við þessu frumvarpi og eitt þessara 26 sveitarfélaga sem sendu inn umsögn. Nú höfum við heyrt hér í umræðunni — ég segi nú ekki síðustu daga, það er orðið svolítið síðan stjórnarliðar tóku þátt í umræðunni — að frumvarpið hafi verið lagað til og að hækkun frítekjumarksins hafi leitt það af sér að þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki ættu að vera í nokkuð góðu vari. Nú kemur tölvupóstur frá Grundarfjarðarbæ sem sýnir akkúrat þveröfuga sögu, algjörlega þveröfug áhrif þessa frumvarps á þessi fyrirtæki sem eru í Grundarfjarðarbæ. Þar er stærsta fyrirtækið, sem er nú ekki stórt í þessum öllum samanburði, G.Run. Þar kemur bara beinlínis fram, virðulegur forseti, að eftir að meiri hluti atvinnuveganefndar hefur lagt til breytingar á frumvarpi sem átti að hlífa litlum og meðalstórum fyrirtækjum þá er veiðigjaldið enn að hækka. 2024 var það 55% sem voru beinar álögur; veiðigjald, kolefnisskattur og tekjuskattur, skattspor fyrirtækisins. Það fer með frumvarpinu í 66% og eftir breytingar meiri hluta atvinnuveganefndar er þetta komið í 69% sem fyrirtækið er að borga sem hlutfall af áætlaðri rekstrarafkomu. Þetta er nú mjög ítarleg og góð umsögn. Mig langar að lesa hérna lokaorðin, með leyfi forseta, frá Grundarfjarðarbæ, sem segir:

„Þótt öll meginsjónarmið sjávarbyggðanna séu löngu komin fram, þar á meðal sjónarmið okkar sveitarfélags, þá telur bæjarstjórn ástæðu til að árétta framangreint. Hver sem tilgangur lagabreytingarinnar er; leiðrétting sem teflt hefur verið fram og sanngjarnari innheimta skatta/gjalda, sem sannarlega er eilífðarumræðuefni stjórnmálanna, þá eru það afleiðingarnar sem bæjarstjórn horfir til í okkar 900 manna sjávarbyggð. Spyrja má einnig, hvernig viljum við að íslenskt samfélag þróist. Með hvaða ráðum tryggjum við fjölbreytt atvinnulíf í dreifðum byggðum? Viljum við tryggja að minni fyrirtæki, sem leikið hafa lykilhlutverk í nýtingu sjávarauðlindarinnar víða um land og staðið af sér ýmis áföll, geti áfram starfað - eða sættum við okkur við að örfá stórfyrirtæki verði ráðandi og greiðum samþjöppun enn frekar leiðina? Ef sú verður raunin, hvaða úrræða ætlar löggjafinn þá að grípa til, fyrir byggðir eins og okkar?“

Virðulegur forseti. Þarna enn og aftur eru sveitarfélögin að lýsa áhyggjum sínum. Ef einhver hefur verið í vafa um það hvort þær breytingar sem málið hefur fengið í meðförum nefndarinnar hafi verið til að minnka eða draga úr áhyggjum sveitarfélaganna þá er það algerlega ljóst hér að svo er ekki. Ég veit, virðulegur forseti, að þessar áhyggjur sem Grundarfjarðarbær er að endurspegla núna og koma með eru ekki bara áhyggjur Grundarfjarðarbæjar heldur áhyggjur mjög margra sveitarfélaga á landinu og sennilega allra þeirra 26 sveitarfélaga sem sendu inn umsögn í þessu máli.