veiðigjald.
Frú forseti. Við ræðum hér áfram um veiðigjöldin. Ég ætla að viðurkenna að ég átti ekki endilega von á að við yrðum að ræða þau í dag. Maður hefur með reglulegu millibili komist að þeirri niðurstöðu að hlutirnir séu komnir á einhvern rekspöl í samningaviðræðum þar sem aðilar hafa fundið kannski einhvern sameiginlegan þráð til að spinna en því miður virðist alla vega vera kominn hnútur á þann þráð eins og er.
Ég velti fyrir mér, af því að við vorum í fundarstjórn forseta áðan, sem ég tók reyndar ekki þátt í, en ég vil leyfa mér að segja að slíkar samkomur eru hreinlega til þess fallnar að hnýta þennan hnút enn þá fastar. Ég ætla ekkert að fara að nafngreina hér einhverja ákveðna þingmenn en ég ætla hins vegar að nefna að það hlýtur að vera örðugt í þessu máli að nota mjög sver orð um það hvernig framhaldið verði, því að í hlutarins eðli liggur alveg ljóst fyrir að þá eru menn að mála sig algerlega út í horn, menn eru að reyna að búa til stöðu sem er ekki hægt að leysa og ég er alveg sannfærður um að enginn hér í þingheimi hefur áhuga á því að láta þetta mál fara þannig að það verði slegið eitthvert sérstakt Íslandsmet í málþófi eða að við þurfum að standa hér áfram út júlí og jafnvel eitthvað inn í ágúst. Ég hef ekki trú á að það sé vilji þingmanna og ég ætla leyfa mér að segja að þeir sem kannski ættu að stíga fram á þessum tímapunkti eru nú t.d. þingflokksformennirnir og ráðherrar, eða alla vega ráðherra málaflokksins, og ég ætla að segja forsætisráðherra og auðvitað hæstv. ráðherra félags- og húsnæðismála, Inga Sæland, og bera klæði á vopnin. Það hlýtur að vera þeirra hlutverk. Það getur enginn annar að mínu mati stigið þetta skref.
Mér líður stundum eins og ég sé tindáti í læmingjaher og ég sé að reyna að sannfæra kónginn um að það sé ekki skynsamlegt að fara fram af bjarginu. Mér líður þannig af því að þegar maður horfir á þær athugasemdir sem hafa verið gerðar við þetta frumvarp, hversu í rauninni, ég ætla að segja bara innilegar og sárar þær eru, hér eru sveitarfélög um allt land og forsvarsmenn fyrirtækja að í rauninni benda á hið augljósa og við þurfum ekkert að karpa um það, þetta frumvarp mun hafa veruleg áhrif á alla þessa aðila. Ef sú er staðan og við í minni hlutanum hér á þingi trúum því að þetta sé rétt og okkur eru enn að berast áskoranir um að standa vaktina eins og hv. þm. Stefán Vagn fór í gegnum hérna áðan þá munum við gera það. Við munum standa þessa vakt hvað það varðar. En væri skynsamlegra að kannski segja við meiri hlutann og meiri hlutinn þá bara einfaldlega horfði til þess að mögulega er hægt að stíga þetta í varfærnari skrefum heldur en boðið hefur verið upp á? Hvert er tapið í því? Er tapið fólgið í bara nákvæmlega þeim þætti sem ég var að lýsa því í upphafi, að við erum búin að segja of sver orð í þessari umræðu til að geta stigið til baka? Er það málið? Verður hæstv. atvinnuvegaráðherra eitthvað minni þó að hann taki þetta skref á þremur árum? Ekki í mínum huga. Hann verður það kannski hjá einhverjum en ekki í mínum huga. Í mínum huga er það spurning um klókindi og það er stjórnviska. Ríkisstjórnin ber ábyrgð á þessu máli frá A til Ö. Það er hennar að stíga þetta fyrsta skref í því að búa til sátt sem getur haldið og sátt þar sem þau fá í rauninni að ná að hluta til sínum málum fram en við gætum þó þeirrar varúðar að við kollvörpum ekki neinu. Ég skil hreinlega ekki af hverju ráðamenn hafa ekki þegar stokkið á þetta í staðinn fyrir að vera að beita okkur tindátunum hérna í einhverri öskurkeppni um fundarstjórn forseta.