156. löggjafarþing — 82. fundur,  7. júlí 2025.

veiðigjald.

351. mál
[11:08]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Það var áhugaverð fundarstjórn hér áðan. Ég ætla rétt að vitna í það sem sagt var þar, þar sem hv. þm. Grétar Mar Jónsson kom í fundarstjórn, þar sem verið var að vitna í minni hlutann og tala um minni hlutann með þessum hætti og ætla bara að vitna orðrétt í það sem kom fram. Þetta er það sem Grétar Mar Jónsson, hv. þingmaður Flokks fólksins, sagði, með leyfi forseta:

„Hérna bullar fólk tóma vitleysu og manni dettur í hug að þetta séu meira og minna þorskar á þurru landi, viti ekkert hvað þeir eru að segja og leggja til. Ég hvet fólk til að hætta að hlusta á einhliða áróður LÍÚ-klíkunnar og fara eftir þeim eins og hundur í bandi og gelta þegar þeim er sigað.“

Þetta sagði hv. þingmaður í fundarstjórn áðan. Það er hreint og beint ótrúlegt ef þessi orð verða ekki tekin fyrir á fundi forsætisnefndar. Ég man ekki eftir svona orðum þessa níu þingvetur sem ég hef verið á þingi. Þetta er ótrúlegt. Svo hélt þingmaðurinn áfram, með leyfi forseta:

„Það er farið með alls konar rangindi á flestum sviðum varðandi sjávarútvegsmál, bæði hvað varðar fiskveiðistjórn og það að enginn sjávarútvegur sennilega í heiminum er meira ríkisstyrktur heldur en íslenskur sjávarútvegur.“

Talandi um staðreyndavillur. Hér er hv. þingmaður að segja áðan í fundarstjórn að það sé hvergi meira ríkisstyrktur sjávarútvegur heldur en á Íslandi. Hvar er þessi umræða í þingsal? Þetta er með hreinum ólíkindum. Það er eins og sjávarútvegsstefna Frjálslynda flokksins hafi tekið yfir sjávarútvegsstefnu Íslands, tekið yfir stefnu ríkisstjórnarinnar í dag. Þessi orð eru nefnilega með ótrúlegum hætti: „Hérna bullar fólk tóma vitleysu.“ Það er verið að tala um hv. þingmenn minni hlutans. Hérna erum við sem sagt bara hundar í bandi LÍÚ. Þetta er það sem verið er að segja. Hversu lágkúrulegt er hægt að fara?

Ég veit ekki til þess að hv. þm. Grétar Mar Jónsson hafi endilega tekið mikinn þátt í umræðunni um veiðigjöldin. Ég held að hann hafi þá tækifæri til þess í dag. En þetta orðfæri sem var hér áðan er náttúrlega með hreinum endemum. Það sem sá sem hér stendur er fyrst og fremst að verja eru hagsmunir landsbyggðarinnar, hagsmunir sjávarútvegsbyggðanna við strendur landsins sem eiga gríðarlega hagsmuni undir. Þetta er nefnilega ekkert annað en skattur; Vestfjarðaskattur, Norðlendingaskattur, Austfirðingaskattur, Eyjaskattur. Það er verið að fara gegn þessum 26 sveitarfélögum sem hér hafa sent inn umsagnir með mjög hörðum hætti. 15–20% af útsvari þessara sveitarfélaga koma af þessari atvinnugrein. Auðvitað hefur það gríðarlega mikið að segja og það er ekki skrýtið að það séu miklar áhyggjur í sveitarfélögunum vítt og breitt um landið þegar þessi aðför fer fram. Þetta er auðvitað bara aðför að þessum byggðum út frá fjárhagslegum hagsmunum, út frá rekstri sveitarfélaganna. Á sama tíma er þetta 1–2% af útsvari á höfuðborgarsvæðinu. Það er þá ekkert skrýtið og ég mun taka það í næstu ræðu, frú forseti, það sem kom síðan í öðru hér áðan frá hv. þm. Ásthildi Lóu Þórsdóttur varðandi sveitarfélögin og sú nálgun sem þar var farin.

Frú forseti. Forsætisnefnd hlýtur að fara yfir þessi ummæli sem féllu í fundarstjórn áðan. Það verður bara að koma með einhverjum formlegum hætti frá okkur þingmönnum minni hlutans hvernig var talað til okkar hér áðan (Forseti hringir.) ef forsætisnefnd gerir það ekki á eigin nótum.