156. löggjafarþing — 83. fundur,  8. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:03]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég vil taka undir með kollega mínum, þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, varðandi þessa dagskrártillögu, að fjármálaáætlun fái svigrúm hér í dag. Við erum búin að taka hana fyrir tvisvar, svona örlítið, á þingfundum í síðustu viku en náðum ekki að ljúka umræðunni. En venjan er samt sem áður að í þinglokasamningum hefur oft verið samið um umræðu í fjármálaáætlun. Það hefur ekki verið gert á þessu vorþingi. Þar af leiðandi er afar mikilvægt að ljúka þessari umræðu, svo ég tali nú ekki um svo að það sé hægt að loka þeim talnagrunni fyrir fjárlög næsta haust sem eflaust er í vinnu núna í fjármálaráðuneytinu, þannig að ég bið hæstv. forseta að skoða þessa tillögu.