156. löggjafarþing — 83. fundur,  8. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég vil bara taka undir með kollegum mínum, þingflokksformönnum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það er nauðsynlegt, og það ætti að vera okkur öllum ljóst, að risamál eins og fjármálaáætlun þokist hér áfram hvað umræðu varðar í sal. Það eru fáir sem enn hafa komist á mælendaskrá í þessu máli og ólíkt mörgum öðrum málum sem eru hér á dagskrá eða bíða þess að komast á dagskrá, í biðstofunni, þá er þetta lögbundið verkefni að klára og forsenda þess að hér verði lögð fram fjárlög í haust til samræmis við lög um opinber fjármál. Í því samhengi þá blasir við að það er skynsamlegt að skapa svigrúm fyrir viðbótarumræðu. Þó að málið hafi komist á dagskrá hér áður þá hefur það verið í knappan tíma og mjög knappan tíma miðað við hvert málið er. Og sömuleiðis, ef ég man rétt, hefur verið óskað eftir tvöföldum ræðutíma í málinu.