stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, strandveiðar, frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Byggðastofnun, Félagi skipstjórnarmanna, Fiskistofu, Fjarðabyggð, Hafrannsóknastofnun – rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, Landssambandi smábátaeigenda, Múlaþingi, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum smærri útgerða, Strandveiðifélagi Íslands, Skagafirði, Verðlagsstofu skiptaverðs og Viðskiptaráði Íslands.
Nefndinni bárust 18 umsagnir um málið, gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Markmið frumvarpsins er að tryggja 48 veiðidaga til strandveiða á árinu 2025. Atvinnuvegaráðherra er með frumvarpinu veitt bráðabirgðaheimild til að flytja milli ára aflamagn sem kæmi til úthlutunar á komandi árum innan 5,3% kerfisins.
Að mati meiri hlutans er ljóst að með frumvarpinu eru lagðar til þrjár meginbreytingar á lögunum.
Í fyrsta lagi er í ákvæði til bráðabirgða kveðið á um að Fiskistofa skuli ekki stöðva strandveiðar á fiskveiðiárinu 2024–2025. Er sú breyting lögð til svo unnt sé að ná fram markmiði frumvarpsins um 48 daga strandveiðitímabil, sem er liður í því að koma til móts við (Forseti hringir.) álit mannréttindanefndar
(Forseti (ÞSv): Get ég fengið hljóð í hliðarsal?)
Sameinuðu þjóðanna frá 24. október 2007 í máli nr. 1306/2004 um að gæta að atvinnufrelsi og tryggja jafnræði í aðgangi að fiskveiðiauðlindinni.
Þá er lagt til að ráðherra hafi skýrari heimild til að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða til viðbótar við núverandi aflamark á yfirstandandi fiskveiðiári. Verði það viðbótaraflamark fært til baka eigi síðar en að þremur fiskveiðiárum liðnum. Er það mat meiri hlutans að með þessu sé tryggt að strandveiðar á árinu 2025 verði innan skýrra heimilda, en vandséð er að takmarkaðar handfæraveiðar geti ógnað fiskstofnum með nokkru móti. Það má jafnvel leiða líkur að því að magnið sé það óverulegt að það rúmist innan vikmarka og sérstaklega í ljósi þess endurmats sem fer reglulega fram á stofnstærð viðmiðunarstofns hjá Hafrannsóknastofnun.
Að síðustu er um að ræða heimildir Fiskistofu til að fylgja betur eftir strandveiðum og tryggja að framkvæmd þeirra fari eftir lögum. Stofnuninni eru með frumvarpinu veittar auknar heimildir til að sekta og svipta skip leyfum séu brot ítrekuð. Um er að ræða annars vegar heimildir sem snúa að umframaflamagni í veiðiferð og hins vegar brot gegn skilyrðum um eignarhald lögaðila, eignarhald strandveiðibáta og lögskráningu. Meiri hlutinn leggur til breytingu á því fyrrnefnda, sem nánari grein er gerð fyrir hér að aftan.
Að mati meiri hlutans er það óumdeilt að strandveiðar færa líf í hafnir landsmanna sem liggja vel að fiskimiðum óháð því hvort umrædd byggðarlög hafa misst frá sér aflaheimildir eður ei. Aukið líf í höfnum er aðdráttarafl fyrir ferðamenn og styður við aðra þjónustu í sjávarþorpunum. Það felst því ákveðin byggðafesta í því að treysta strandveiðar enn betur í sessi. Strandveiðar eru að mati meiri hlutans mikilvægur þáttur í því að halda uppi fiskvinnslum víða um land yfir sumartímann, sérstaklega í hinum veikari byggðum landsins sem reiða sig í mismiklum mæli á almennan og sértækan byggðakvóta. Þá er það og mat meiri hlutans að strandveiðar séu mikilvægar fyrir fiskmarkaði víða um land, sem hafa með þeim aðgengi að nýju hráefni, af dagróðrabátum, yfir sumarmánuðina.
Þá kynni ég breytingartillögu meiri hlutans sem varðar viðurlög, 1. gr. Fyrir nefndinni og í umsögnum til hennar hafa komið fram ábendingar um viðurlagaákvæði frumvarpsins, þ.e. að frumvarpið geri ráð fyrir að sekt vegna umframafla verði andvirði gjaldskylds afla í stað meðalverðs á samsvarandi afla á fiskmörkuðum á þeim stað og því tímabili þegar landað var. Jafnframt verði Fiskistofu skylt að svipta skip leyfi til strandveiða fyrir ítrekuð brot, ef landað er oftar en þrisvar sinnum umframafla sem nemur 5% af leyfilegum afla í hverri veiðiferð. Í umsögn Landssambands smábátaeigenda er á það bent að í stað sviptingar veiðileyfis sé vænlegra að miða við að sektarupphæð verði tvöfölduð. Þá hefur komið fram fyrir nefndinni að svipting veiðileyfis sem viðurlög við brotum kunni að leiða til aukins brottkasts á afla. Í ljósi þessara athugasemda leggur meiri hlutinn til breytingu á frumvarpinu þess efnis að í stað sviptingar leyfis verði sektir fyrir brot tvöfölduð séu þau endurtekin, þ.e. að sekt miðist við tvöfalt andvirði gjaldskylds afla samkvæmt 3. gr. laga um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.
Áfram verði miðað við sama viðmið og lagt er til í frumvarpinu, þ.e. að með ítrekuðum brotum er átt við að aðili sem hefur leyfi til strandveiða hafi landað oftar en þrisvar sinnum umframafla sem nemur 5% yfir leyfilegum afla í hverri veiðiferð.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
Í stað orðanna „svipta skip leyfi til strandveiða“ í 2. málsl. 3. efnismgr. 1. gr. komi: tvöfalda sektir skv. 2. mgr.
Eiríkur Björn Björgvinsson og María Rut Kristinsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álitið með heimild í 2. mgr. 9. gr. þingskapa. Undir nefndarálitið rita eftirfarandi hv. þingmenn, sú sem hér stendur, Lilja Rafney Magnúsdóttir, framsögumaður, Sigurjón Þórðarson, formaður atvinnuveganefndar, Eiríkur Björn Björgvinsson, María Rut Kristinsdóttir, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Eydís Ásbjörnsdóttir.
Þá liggur fyrir hvernig þetta nefndarálit hljóðar af hálfu okkar í meiri hluta atvinnuveganefnd og ég treysti því að þetta mál gangi hratt og vel fyrir sig eins og öll önnur mál hafa gengið hér síðastliðnar vikur. Ég treysti því að þingheimur styðji vel við strandveiðar sem hafa vissulega hleypt miklu lífi í sjávarbyggðir vítt og breitt um landið og þar sem ég veit að þingheimi öllum er mjög umhugað um veikari sjávarbyggðir, eins og hefur komið fram í umræðum undanfarið, þá er þetta mál sem við getum öll sameinast um að standa við bakið á og efla og tryggja þessar umhverfisvænu veiðar út sumarið eins og alltaf var til ætlast þegar 48 daga kerfið var sett á 2019 og aflamagn yrði tryggt í þær veiðar. Þetta eru þær umhverfisvænustu veiðar sem hugsast getur og engin ástæða til annars en að lyfta þeim upp og tryggja atvinnu í sjávarbyggðum og þjónustu við þessa grein í sjávarplássunum, sem hefur virkilega sýnt fram á að skiptir máli. Það telur allt í atvinnu víða um land og eitt spillir ekki fyrir öðru heldur er þetta samlegðaráhrif sem eru mjög mikilvæg, að fjölbreytileikinn fái að njóta sín í sjávarbyggðunum og að þær auðlindir sem eru fyrir utan byggðirnar geti nýst sem best heimamönnum og geti skapað líka atvinnu á viðkomandi svæðum og tryggt atvinnu yfir sumartímann eins og hefur sýnt sig í mörgum fiskvinnslum þar sem vantar hráefni. Strandveiðarnar hafa vissulega staðið undir því að tryggja hráefni yfir sumartímann þegar kannski stærri útgerðir hafa ekki verið að veiðum og hafa verið búnir að nýta sínar aflaheimildir og ekki verið starfandi. Ég treysti því að við getum klárað þetta mál hratt og vel.