stjórn fiskveiða.
Frú forseti. Ég þakka hv. framsögumanni fyrir ræðuna. Það eru nokkur atriði sem mig langar til að spyrja hv. þingmann að. Í fyrsta lagi: Nú liggur fyrir að hér segir í frumvarpinu, og það er ekki brugðist neitt sérstaklega við því í nefndarálitinu, með leyfi forseta:
„Til að unnt sé að tryggja 48 veiðidaga kann að þurfa að gera breytingar á því magni sem heimilt er að veiða í hverri veiðiferð.“
Mig langar til að spyrja hv. þingmann um afstöðu til þessa atriðis, hvort það komi til greina á næsta strandveiðitímabili að mati hv. þingmanns að lækka veiðimagn hvern dag úr 774 kílóum niður í eitthvað minna í ljósi þess að í frumvarpinu er það leitt út að það sem fer umfram útgefinn kvóta þessa árs verður dregið af strandveiðikvóta næstu þriggja ára og engin önnur leið teiknuð upp í frumvarpinu. Það skiptir máli hver afstaða virðulegs hv. meiri hluta atvinnuveganefndar er til þessa atriðis í ljósi þess sem stendur í frumvarpinu því að það er það sem við erum að fjalla um.
Síðan er því auðvitað flaggað hér að áform séu uppi um að leggja fram frumvarp í haust sem innifelur þá væntanlega í sér einhverjar aðlaganir á grundvelli þeirrar reynslu sem fæst í sumar. Með hvaða hætti sér hv. þingmaður og framsögumaður nefndarálits meiri hluta fyrir sér að það frumvarp verði útfært með tilliti til 5,3% pottsins?