stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður spyr um það aflamagn sem sé í hverri veiðiferð, hvort ég sjái fyrir mér að það breytist hugsanlega. Ég sé það ekki fyrir mér og ég mun ekki styðja að það lækki. Ég tel að þetta sé mjög ásættanleg tala og það yrði mjög óhagkvæmt að fara að lækka það magn enda er það ekki í þessu frumvarpi. Ég tel að það muni ekki verða í því frumvarpi sem á eftir að útfæra og vinna, eins og hv. þingmaður kom inn á.
Þetta frumvarp gengur vissulega út á það að endurgreiða þann hugsanlega viðbótarafla sem þarf að setja í kerfið núna til að tryggja þessa 48 daga og endurgreiða þá. Það hefur komið í ljós að í gegnum tíðina hefur oftar en ekki verið farið út fyrir ráðgjöf Hafró sem hefur síðan ekki þótt ástæða til að endurgreiða. En við leggjum fram þessa ábyrgu tillögu hér að það verði gert í ljósi þess að þetta kerfi verði endurskoðað með það að markmiði að tryggja afla í 48 daga. Við erum að tala innan 5,3% kerfisins. Það er bara verkefnið fram undan og það eru ýmsar leiðir sem ég ætla ekki að fara í smáatriðum út í hér til þess að gera það. Ég hef verið hlynnt því að hækka þetta hlutfall, 5,3%, í hærra hlutfall af útgefnum aflaheimildum og tel það vera bara mjög eðlilegt. En ég er mjög mikil stuðningsmanneskja þess að við stöndum við bakið á þeim veikari byggðum sem eru með samninga um sérstakan byggðakvóta. Sérstakur byggðakvóti er auðvitað ekki hugsaður sem slíkur að eilífu heldur til að koma viðkomandi fyrirtækjum í öruggari höfn.