156. löggjafarþing — 83. fundur,  8. júlí 2025.

stjórn fiskveiða.

429. mál
[10:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir andsvarið. Ég er ánægður að heyra þá afstöðu sem auðvitað liggur fyrir hér í frumvarpinu. Það hefur verið slegið í og úr í umræðunni hvort það séu hin raunverulegu áform en ég er ánægður að heyra frá hv. þingmanni, framsögumanni nefndarálits meiri hluta, að það séu áform um að gera upp þá umframkeyrslu sem hér verður vegna þess að það er í raun nauðsynlegt að viðhafa þann takt. Annars verður bara eitthvert algjört vantraust á afgreiðslu mála í framhaldinu ef eitthvert leikrit væri í því fólgið. Síðan tekur bara við hvað verður í frumvarpinu í haust. En þar hefur hæstv. atvinnuvegaráðherra sagt mjög skýrt að hlutföllum milli 5,3% pottsins og þess stóra verði ekki breytt þannig að við erum enn þá föst í því að vinna innan 5,3% pottsins. Ég hef haldið því fram að það sé ótækt fyrir okkur þingmenn að vera settir í þá stöðu að taka afstöðu til þessa máls á meðan við vitum ekki hver áformin eru um breytingar á 5,3% pottinum til að mæta þeim sjónarmiðum sem koma fram á grundvelli reynslu þessa sumars í strandveiðunum.

En mig langar til að spyrja hv. þingmann um nýliðun sem er eitt af þeim sjónarmiðum sem voru höfð til grundvallar strandveiðinálguninni. Hvernig þykir hv. þingmanni hafa tekist til hvað það atriði varðar annars vegar? Og hins vegar hvort hv. þingmaður þekki til hvers vegna málið kemur svona seint til þingsins. Eitt er að við séum að ræða það núna fyrst í 2. umræðu nokkrum vikum eftir að áætlað var að þing færi í sumarleyfi, en málið kom mjög seint til þingsins. Kann hv. þingmaður skýringu á því?