stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að svara fyrir hæstv. ráðherra hvers vegna er málið komið svona seint til þingsins. Því verður virðulegur hv. þingmaður að inna hann eftir. En ég tel þetta mál bara vera nauðsynlegt til að ljúka þessu máli og hafa svona axlabönd og belti þó að ég telji í sjálfu sér að vikmörk innan þessa sveigjanleika sem þar er séu til staðar. En ég er fylgjandi því að við förum þessa leið. Það má benda á að það má færa aflamark á milli ára, 15% í aflamarkskerfinu, og ónýttar heimildir hjá byggðakvóta hafa verið færðar á milli ára. Á síðasta ári voru um 3.700 tonn færð á milli ára í þessum hluta kerfisins eins og leyfilegt er. Það má líka benda á það að VS-aflinn, 5% af afla sem reiknast ekki til aflamarksskipa, og undirmál og rannsóknarkvóti Hafrannsóknastofnunar á síðasta ári, allt þetta á síðasta fiskveiðiári, það sem er utan útgefins aflamarks á grundvelli ráðgjafar Hafró, voru 7.000 tonn sem hvergi eru eyrnamerkt. Ég hefði talið að það væri mjög skynsamlegt að menn gerðu eins og er gert varðandi togararöll og annað því um líkt. Og líka að Hafrannsóknastofnun rannsakaði grunnslóðina og handfæraveiðar og eyrnamerkti það sem rannsóknarafla, gerði a.m.k. tilraun eitt eða tvö sumur, því að sjómenn segja að það sé mjög mikil fiskgengd og stór og góður fiskur sem veiddur er á handfærum.