156. löggjafarþing — 83. fundur,  8. júlí 2025.

stjórn fiskveiða.

429. mál
[10:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, það er hægt að velta því fyrir sér fram og til baka hvers vegna þetta mál kemur svona seint inn og reglugerð hafi ekki dugað til. Menn vilja bara hafa fast land undir fótum þó að á sjó sé og að þetta sé tryggt og menn þá vinni út frá því. Við þekkjum það nú, ég og hv. þingmaður, að mörg mál hafa komið inn á lokasprettinum í gegnum árin og það er bara ekkert nýmæli í sjálfu sér. Við þekkjum það, bara á síðasta vorþingi voru stór mál afgreidd hérna á lokametrunum sem hefðu kannski mátt bíða eins og búvörulög og kvótasetning og fleira, svo að ég held að það eigi ekki að vera stóra málið í þessu samhengi heldur vilji þingsins til þess í raun að styðja við þessar brothættu byggðir. Þeir sem styðja einkarekstur og einyrkja, sem ég held að séu nú ansi margir hér á þessu þingi og ekki bara meiri hlutinn heldur minni hlutinn í orði, vill styðja einyrkja í rekstri, ættu nú að þjappa sér saman gagnvart þessu máli og styðja það. Það vita það allir að strandveiðar ógna ekki fiskstofnum og það er mikil eftirspurn á erlendum mörkuðum eftir þessu hráefni og á síðasta ári var bara mjög erfitt fyrir fisksölur erlendis að fá ekki þetta ferska hráefni í verslanir erlendis og það var kvartað mikið yfir því að það væri ekki tryggt út allt sumarið. Þessi fiskur selst á hærra verði heldur en t.d. togarafiskur á erlendum mörkuðum og mikil eftirspurn eftir svo nýju hráefni sem kemur af dagróðrabátum.