yfirlýsing ráðherra.
Frú forseti. Ég vil bregðast við þessum óundirbúna lið frá hæstv. forsætisráðherra. Ég tek undir að það er hlutverk okkar hér inni að verja fullveldið, verja lýðræðið. Það gerum við m.a. með samtali. Við í stjórnarandstöðunni höfum gagnrýnt það, ekki bara dögum heldur vikum saman, hversu tregir stjórnarliðar hafa verið til þess verks að koma hingað í salinn og eiga við okkur samtal um það mál sem hér hefur verið rætt hvað lengst. Það hefur engin breyting orðið þar á en það hafa verið, eins og þekkt er og komið hefur fram í fjölmiðlum, ágæt samtöl um alllangan tíma sem margir höfðu væntingar um að gætu leitt það mál sem mest er deilt um, veiðigjaldið, í jörðu. Hökt er á því eins og við þekkjum en við í stjórnarandstöðunni erum hér eftir sem hingað til tilbúin til að ræða lausnir í þeim efnum og vona ég að við séum í færum til að gera það. Það hefur verið gagnrýnt — svo ég bregðist sérstaklega við orðum forsætisráðherra varðandi það að stjórnarandstaðan gangi lengra en áður þekkist, þá er staðan sú að þar er verið að setja umræðu um veiðigjöld á þá mælistiku sem viðhöfð var í umræðu um orkupakka þrjú fyrir nokkrum árum síðan. Þar stóðu níu þingmenn og töluðu í hér um bil jafn langan tíma og nú hefur verið rætt. Nú eru 27 þingmenn í stjórnarandstöðu sem eru sem ein heild að gera kröfu um það að stjórnarliðar mæti til samtalsins um það sem að er í þessu frumvarpi og þau áhrif sem það kallar fram. Þess vegna stöndum við í þessu. Það er ekkert leikrit í gangi hérna og virðing fyrir lýðræðinu og fullveldinu er allt eins mikil stjórnarandstöðumegin og hjá núverandi stjórnarflokkum. Það er óumdeilt, held ég, hjá öllum sem á horfa þegar við tökum tillit til sjónarmiða eins og t.d. umræðu um bókun 35 sem átti sér stað áður en veiðigjaldaumræðan hófst.
Þetta snýst auðvitað líka um það hvernig við umgöngumst vald. Það að umgangast vald hverfist líka um það að eiga samtal við minni hlutann. Það samtal hefur að okkar mati ekki átt sér stað með forsvaranlegum hætti. Þá skiptir engu máli þó að hæstv. ráðherrar hnussi hér í sætum sínum. Það er bara staðreyndin, á það hefur verið bent lengi og sú staða er óbreytt. Því hvet ég til þess að hæstv. forsætisráðherra sýni þann myndugleika að koma til raunverulegs samtals við okkur í stjórnarandstöðunni. Þá eru bara góðar líkur á að úr þessu rætist býsna hratt.