156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

yfirlýsing ráðherra.

[10:06]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Við sem erum kjörin hér til setu á Alþingi undirritum eið að stjórnarskránni, heitum að virða hana, horfum auðvitað um öxl og höfum þær venjur og hefðir sem með okkur koma inn. Við erum hins vegar, held ég, öll alla daga tilbúin að bæta þær ef þær eru ekki nægilega góðar. Grundvöllur lýðræðis er samtal. Það er hvorki að minni hluti taki meiri hlutann og pakki honum saman og komi í veg fyrir að eitthvað gerist og það er heldur ekki að meiri hluti, sem í þessu tilviki styður sig við 50,4% þjóðarinnar, gangi hér og valti yfir minni hlutann. Þetta snýst um samtal. Hér hefur meiri hlutinn talað mikið um heimsmet í lengd ræðutíma en ætli það sé ekki bara líka að verða Íslandsmet og heimsmet í hversu lengi við í minni hlutanum höfum þurft að bíða eftir því að meiri hlutinn settist niður með okkur og reyndi að ná samtali. Það samtal að mínu mati var hægt að klára og er enn hægt að klára. (Forseti hringir.) Ég hvet okkur öll til þess að nota samvinnu og samtal sem lausn en ekki annað.