156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

dagskrártillaga.

[10:18]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga:

„Fyrir hönd þingflokksformanna stjórnarandstöðu leggur Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, fram þessa dagskrártillögu, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. laga um þingsköp Alþingis, að á dagskrá fundar nr. 85 á 156. löggjafarþingi verði óundirbúinn fyrirspurnatími og fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030. Lagt fram á 84. fundi Alþingis þann 9. júlí 2025.“

Undir bréfið ritar Bergþór Ólason.

Fer nú fram atkvæðagreiðsla um tillöguna.