dagskrártillaga.
Virðulegur forseti. Við erum stödd hér 10. júlí. Fjármálaáætlun hefði átt að klárast fyrir mánuði, áður en hefðbundin starfsáætlun þingsins kláraðist, til þess að gefa framkvæmdarvaldinu, fjármálaráðuneytinu og öðrum ráðuneytum tækifæri til þess að byggja fjárlagavinnu sína á samþykktri fjármálaáætlun. Það er inntak laga um opinber fjármál þannig að það er augljóst að við hefðum átt að vera búin að klára fjármálaáætlunarumræðuna sem hluta af því sem við erum að gera hér og þess vegna er eðlilegt að hún sé sett á dagskrá. Það er líka eðlilegt, úr því að þing er enn starfandi 10. júlí, að hér séu haldnir óundirbúnir fyrirspurnatímar til þess að þingmenn geti spurt ráðherra út í mál sem eru í gangi dagsdaglega ef það er meiningin að halda þingi áfram eins og ekkert hafi í skorist 10. júlí, þannig að ég styð augljóslega þessa tillögu.