dagskrártillaga.
Frú forseti. Ég vildi bara koma hingað upp undir þessum lið til að fá aðeins að ramma inn það sem maður hugsar þegar maður horfir yfir töfluna. Það sem er í gangi núna er það að þingheimur á Alþingi, mismunandi flokkar og þingmenn, er ekki sammála um það hvernig dagskrá þingsins eigi að vera. Hvað er þá gert? Þá er lögð fram tillaga, hún borin fram og rökstudd með lýðræðislegum hætti og síðan greiðum við atkvæði um tillöguna. Við greiðum atkvæði um tillöguna. Ég hefði haldið að í þessum sal væru menn almennt þeirrar skoðunar að þannig ættum við alltaf að gera þegar við erum ósammála, að greiða atkvæði í lýðræðislega kjörnu þingi; að vægi atkvæða ráði úrslitum þegar við erum ósammála um það hvernig hlutirnir eigi að ganga fyrir sig. Alþingi Íslendinga er hins vegar þannig skipað í dag að ekki einu sinni um þetta ríkir sátt. Þessa tillögu ætla ég ekki að styðja en ég fagna því (Forseti hringir.) að ég fái að greiða atkvæði um hana.