dagskrártillaga.
Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þm. Sigmars Guðmundssonar þá er kannski rétt að vekja athygli á því að það er líka markmið hjá Alþingi Íslendinga að vanda til verka. Reyndar er það svo að úr því að við erum hér enn þá ættum við að ræða þá alvarlegu stöðu sem komin er upp út af óvandaðri lagasetningu. Ég er að ræða stöðuna varðandi Hvammsvirkjun. Hér er hins vegar komin ríkisstjórn sem er fordæmalaus. Það eru fleiri sem hafa þingreynslu heldur en hæstv. utanríkisráðherra og munar reyndar ekki miklu og ég hef aldrei séð önnur eins vinnubrögð. En úr því að við erum hér, og það er svo sannarlega ekki eins og stendur í lögum um þingsköp, en látum það liggja á milli hluta, þá væri skynsamlegt að reyna að gera það besta úr því. Það er alger forgangur, vegna þess að það eru lög í landinu sem segja það, að klára fjármálaáætlun. (Félmrh.: … getum gert það …)