dagskrártillaga.
Frú forseti. Ég tek undir orð þingflokksformanns Viðreisnar og fagna því að geta greitt atkvæði. Það sem er áhugavert við þessa tillögu minni hlutans varðandi dagskrárbreytingu er að setja fjármálaáætlun á dagskrá í staðinn fyrir veiðigjöld. Áhugavert er líka í því samhengi að það liggur fyrir að stjórnarandstaðan ætlar ekki að hleypa einu einasta máli í gegn nema það liggi fyrir þinglokasamningar, og þá þinglokasamningar sem eru algjörlega á forsendum minni hlutans, sem er algjörlega fordæmalaust. Það liggur fyrir að stjórnarandstaðan ætlar ekki að hleypa fjármálaáætlun í gegn, það bara liggur fyrir. Hún ætlar ekki að afgreiða málið, hún ætlar ekki að klára þetta lögbundna mál sem þarf að klára. Hún ætlar ekki að gera það. (Gripið fram í: Ha?) Af hverju í ósköpunum ættum við þá að samþykkja slíka breytingu? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)