dagskrártillaga.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um dagskrártillögu. Eftir atvik gærkvöldsins þar sem fulltrúi minni hlutans braut trúnað við forseta þingsins, tók dagskrárvaldið í sínar hendur og sleit þingfundi án samráðs við forseta er lögð hér til dagskrárbreytingartillaga þar sem minni hlutinn ætlar núna að stýra því líka hvað er á dagskrá þessa fundar. Ég vil taka undir orð hv. þm. Ragnars Þórs Ingólfssonar. Minni hlutinn hefur lýst því yfir að engu máli verði hleypt í gegn nema með heildarsamkomulagi um þinglok. Það liggur fyrir. Minni hlutinn hefur haldið því fram að það verði ekkert samkomulag um þinglok nema við samþykkjum veiðigjaldafrumvarpið sem þau leggja fram, ekki sem ríkisstjórn landsins leggur fram, ekki sem stjórnarmeirihluti í landinu er fyrir, heldur þeirra mál. Hér á að málþæfa öll mál þangað til að kerfin verða að fullu varin og tillaga Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Miðflokks verði samþykkt. Að sjálfsögðu klárum við þá veiðigjöldin fyrst. Það er forsenda þess að hægt sé að ræða hér um þinglok í kjölfarið.(Gripið fram í: Heyr, heyr.)