slit þingfundar.
Frú forseti. Það sem gerðist hér í gær var algerlega fordæmalaust. Hér var þingfundi slitið af þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Hildi Sverrisdóttur, án þess að hún hefði til þess umboð í raun og veru eða vilja forseta á bak við sig. Hér þarf að fá nánari skýringar á því hvað var í gangi. Hér hefur verið mikið gert af því af þingflokksformönnum, og ekki síst hv. þm. Hildi Sverrisdóttur, að krefja menn um afsökunarbeiðni á orðum um hitt og þetta. Nú vantar skýringar á því hvers vegna þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins sleit þingfundi án umboðs. Var það gert í samráði við þingflokksformenn Miðflokksins og Framsóknarflokksins? Voru völdin tekin af þingforseta í þeirra umboði? Getur verið að einhver annar en einhver úr stjórnarliðinu skuldi þingi og þjóð afsökunarbeiðni? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)