156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Það blasir auðvitað við að yfirlýsingar m.a. hv. þingmanns og þingflokksformanns Samfylkingarinnar hér um afstöðu til þingloka og þinglokasamninga eru nú kannski ekki alveg upp á punkt eins og staðan horfir við mér a.m.k., bara svo því sé haldið til haga. Varðandi þessa dagskrártillögu sem hér voru greidd atkvæði um rétt í þessu og var felld þá er þetta bara eðlilegur hluti og er beinlínis skrifað inn í lög um þingsköp. Þetta er fjórða dagskrártillagan, ef ég man rétt, sem er lögð fram á þessu þingi og fyrstu þrjár hafa raungerst annaðhvort innan dagsins eða degi eftir að þær hafa verið felldar, þær hafa ekki verið galnari en það eða meiri tilraun til að taka yfir stjórn á þinginu heldur en svo. Þetta er eðlilegasti hlutur í heimi að hér sé lögð fram dagskrártillaga til samræmis við þingskapalög. Ef stjórnarliðar eru viðkvæmir fyrir því og telja að þá sé verið að taka völdin af forseta — þetta er allt einhver della (Forseti hringir.) og skilningsleysi ef þetta er raunveruleg afstaða. Ég skil alveg „skuespilið“ ef það er það sem skiptir máli. En þetta getur ekki verið raunverulegur (Forseti hringir.) skilningur hv. þingmanna. Það stenst enga skynsemisskoðun.