156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:30]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Mér finnst ósanngjarnt að ætla hv. þm. Hildi Sverrisdóttur eitthvað hér með því að hafa slitið fundi rétt fyrir miðnætti. Yfirleitt er það svo ef við höfum lengda þingfundi að horft sé til miðnættis. Það ástand sem búið er að vera hér, að verið er að keyra fundi inn í nóttina, er mjög óvenjulegt. Hv. þm. Hildur Sverrisdóttur, þegar hún sat í forsetastóli í gær, hafði ekki fengið neinar upplýsingar um að það yrði næturfundur. [Hlátur í þingsal.] Hún stýrði því fundi eins og hún best gat gert í samræmi við þingsköp og þær leiðbeiningar sem eru til fyrir forseta.

Ég þakka fyrir hláturinn hér í þingsal. Það sýnir svolítið ástandið í þingsalnum. Mér þykir ómaklega að hv. þingmanni vegið með þessu. Hv. þingmaður hafði ekki ætlað sér að taka einhver völd í þessum þingsal. (Gripið fram í: Hún gerði það.) Hún var einfaldlega að sinna sínum skyldum. Ég vil bara hvetja til þess ef við ætlum að halda áfram með næturfundi (Forseti hringir.) að hæstv. forseti boði okkur í forsætisnefnd til fundar þannig að hægt verði að fara yfir það hvernig við sjáum fyrir okkur að klára þessar vikur sem væntanlega eru eftir af þessu þingi.