slit þingfundar.
Virðulegi forseti. Ég tel mig knúinn til að taka upp hanskann fyrir forseta undir þessum lið og fordæmi þær alvarlegu ásakanir hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur um að hér sé forseti ekki með stjórn á hlutunum. Hér erum við einfaldlega stödd á fordæmalausum tímum þar sem minni hluti þingmanna hér á Alþingi setur Íslandsmet í málþófi til að leggjast gegn lýðræðislegri afgreiðslu mála, þar sem varaforseti minni hlutans slítur þingfundi án samráðs við forseta þingsins. Þetta eru fordæmalausir tímar og grafalvarleg mál. Það sem ég hef áhyggjur af eru þeir hv. þingmenn sem nálgast þetta eins og þetta sé einhver leikur, eins og við séum að spila eitthvert tafl og þetta séu allt einhverjir leikir sem eru sniðugir og hnyttnir; góð fundarskapataktík að slíta hér fundi. Vissulega er varaforsetum treyst fyrir ákveðnu valdi í stóli forseta en það er í umboði forseta Alþingis, ekki án umboðs. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)