slit þingfundar.
Virðulegi forseti. Það sem er fordæmalaust er framganga hæstv. ríkisstjórnar. Það er alveg ástæða fyrir því að það eru lög sem gera ráð fyrir því að þú þarft að koma fram með mál fyrir ákveðinn tíma. Af hverju? Það er til þess að vanda lagasetningu. Hversu oft hafa ríkisstjórnir og ráðherrar þurft að taka mál og koma aftur með þau um haust? Margoft. Það þekki ég sjálfur. Þessi ríkisstjórn ætlar ekki að láta nein rök bíta á sér eða neinar staðreyndir eins og við þekkjum. Það er líka fordæmalaust að við séum komin hérna í júlí á einhvern stað sem er okkur ekki til sóma. Ef, virðulegi forseti, menn virkilega meina eitthvað með sínum yfirlýsingum um virðingu Alþingis og lýðveldið (Forseti hringir.) þá held ég að þetta sé tíminn til þess að forystumenn flokkanna setjist bara niður í einn, tvo daga og við róum þetta aðeins og finnum einhvern flöt á málum.