156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:36]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Nú hefur hv. þm. Hildur Sverrisdóttir alla möguleika á því að koma hingað upp og biðjast afsökunar. Þá væri vonandi hægt að skoða þetta sem eins konar frumhlaup af hennar hálfu. Kjósi hún hins vegar að gera það ekki á hún að hafa hugfast, hv. þingmaður, að ósvífnin gagnvart þingmönnum hér er mjög léttvæg miðað við þá lítilsvirðingu sem hv. þingmaður sýnir bæði þingræðinu og almenningi í landinu. Í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands segir, með leyfi forseta:

„Alþingi kýs sér forseta og stýrir hann störfum þess.“

Ég vona þess vegna innilega, virðulegur forseti, að hv. þingmaður hafi næga dómgreind til að stíga næst rétt skref í málinu.