156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:37]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson sá ástæðu til að minna okkur á að við stöndum hér 10. júlí. Ég veit ekki hvort ég þurfi að árétta fyrir honum ástæðu þess að við stöndum hér 10. júlí. Hér er búið að vera í gangi málþóf svo vikum skiptir, ekki bara í einu máli heldur mörgum málum. Við sáum alveg hvað var að gerast í umræðunni um fjármálaáætlun í gær. Hér er vísvitandi verið að koma í veg fyrir að réttmætt kjörin ríkisstjórn nái sínum málum í gegn. Maður spyr: Hvað er það? Það hafa margir þingmenn í stjórnarandstöðu lýst því yfir, bæði hér í pontu og í fjölmiðlum, að þeir muni ekki hleypa þessu máli í gegn og þeir muni tala hér í allt sumar til þess að þetta mál fari ekki í gegn. Ég spyr: Er þetta ekki skrumskæling á lýðræði? (Forseti hringir.) Það er kominn tími til þess að meiri hluti núna sjái til þess að lýðræðið virki.