slit þingfundar.
Virðulegur forseti. Við hljótum öll að vera hugsi yfir þeirri stöðu sem hefur teiknast upp á Alþingi. Við höfum öll heyrt það grímulaust að þingmenn nátengdir hagsmunum í sjávarútvegi hafa talað um það sem heilaga skyldu að stöðva vilja réttkjörins Alþingis til þess að leiðrétta veiðigjöld. Við horfum upp á Íslandsmet í málþófi í kjölfarið og það er boðað að það verði margbætt. En svo tekur steininn úr þegar varaforseti þingsins án umboðs slítur fundi í gær og bætt í þegar nýr talsmaður Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, segir um framferði stjórnarandstöðunnar að það að taka ekki stjórn á þinginu sé á ábyrgð virðulegs forseta. (Forseti hringir.) Það er komið gott. Það er komið gott og ég held að það eigi bara að taka nýjan talsmann Sjálfstæðisflokksins á orðinu (Forseti hringir.) og taka stjórn á þinginu fyrir þingræðið, fyrir ásýnd Alþingis og fyrir meirihlutavilja í þessu landi.
(Forseti (ÞSv): Ræðutími í fundarstjórn er ein mínúta.)