156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:42]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Viljum við ekki skila því út til samfélagsins að lýðræðið virki fyrir fólkið sem byggir þetta land og lýðveldið Ísland og að við getum unnið hér saman? Á síðasta kjörtímabili voru líka fulltrúar stjórnarandstöðunnar, eins og tíðkast hefur frá upphafi lýðveldis, í forsætisnefnd og gegndu hlutverki forseta. Sér einhver fyrir sér þær aðstæður sem skapast hefðu í Sjálfstæðisflokknum ef Andrés Ingi Jónsson eða Oddný Harðardóttir hefðu gengið á bak Birgi Ármannssyni? Hugsið aðeins um þetta, vegna þess að við vitum að það hefði aldrei gerst. Vitið þið af hverju? Vegna þess að það var snefill af virðingu fyrir þingræðinu, fyrir lýðræðinu í þessu landi, fyrir valdaskiptum og hlutverki stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Þetta er spurning um virðingu fyrir lýðræðinu. Hér ætlar sér stjórnarandstaðan, með Sjálfstæðisflokkinn í broddi fylkingar, (Forseti hringir.) að verja valdakerfið. Við ætlum að verja þingræðið og lýðræðið í þessu landi.