156. löggjafarþing — 85. fundur,  10. júlí 2025.

slit þingfundar.

[10:43]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Mig langar aðeins að tala dálítið út frá sjálfri mér. Ég er nýr þingmaður og ég er hérna nýr forseti og ég verð bara að segja að mér var verulega brugðið að sjá þessar fréttir í morgun, að einn af okkar ágætu forsetum hafi slitið hér fundi án umboðs. Við lærðum öll hér til verka þegar við byrjuðum og þetta er gjörsamlega óhugsandi. Ég vil bara segja að svona fordæmi getum við auðvitað ekki sett hérna. Ég spyr mig: Er nóg að biðjast kannski bara afsökunar? Er hægt að gera í rauninni hvað sem er hér? Nú þekki ég náttúrlega ekki þingskapalög alveg út í hið ysta en hér verðum við auðvitað að hafa reglur í lagi og virða leikreglurnar.

Síðan er sífellt klifað á því hér að það hafi ekki verið samtal og mál séu illa unnin. Það vita það allir sem hafa fylgst með að þetta stenst engan veginn. Nú er kominn tími til að þeir flokkar sem hafa verið hér lengst í valdastöðu verði hreinlega að sætta sig við val þjóðarinnar. Þeir töpuðu í síðustu kosningum (Forseti hringir.) og það verður að læra tapa. Þið eruð hér fullorðið fólk, ágætlega vel gefið fólk og það verður að læra að tapa og fylgja því sem þjóðin hefur ákveðið.